Heimsendir nálgast, og þessvegna hafa almannavarnir Íslands
beðið mig um að byrja að blogga aftur fyrir ykkur kæru félagar til þess að þið
getið nú vitað hvenær þið eigið að flýja land og hvenær er óhætt að snúa til
baka.
En svona burt séð frá öllu bulli og vitleysu þá er þetta
blogg til að ég standi m.a. við loforð við Helgu Rún, í öðru lagi leiðist mér
og í þriðja lagi er Berglind hætt að blogga svo þetta er leiðinlegt líf!
En já, annnars veit ég varla af hverju ég er að blogga því
bílprófslausi work-a-holicinn Hrafnkatla hefur ekki farið útaf hótelinu sínu má
segja síðan hún kom hingað aftur eftir páskafrí… meðan ég er ekki í vinnunni
eyði ég 95% tímans inn í herberginu mínu… án gríns.
En svona til að snúa mér að því sem ég lofaði Helgu þá ætla
ég að blogga um helgina án þess að segja orðið kostningar oftar en ég hef nú
þegar gert! Ég er búin að fá upp í kok kæra Ísland á einhæfri fréttamennsku.
En allavega, um helgina var Sigrún systir hans Árna hérna
upp á hóteli með börnin sín 2, stjúpson sinn og son bróðir síns, sem var alveg
mega stuð! Ég held að ég sé í uppáhaldi hjá þeim 3 herramönnum (litla daman er
bara rétt að skríða í að verða 3ja
mánaða svo ég er ekkert að reyna að heilla hana upp úr skónum strax). En
allavega… þessir peyjar þarna voru alveg að keppast við það að hjálpa mér á
hótelinu og svo var líka smá metingur um hver hefði nú hjálpað meira. En
allavega… ég bara verð að skrifa 2
gullmola sem duttu upp úr þessum krökkum
:
Matti skáfrændi hans Árna (stjúpsonur systir hans) sem er 6
ára held ég var að hjálpa mér inn í sal að taka niður dúkana á
föstudagskvöldinu og svo allt í einu sagði hann…
Matti: Hrafnkatla, þú ert best.
Ég: Takk fyrir það, af hverju er ég best?
Matti: Af því að þú leyfir mér að hjálpa þér að vinna.
Ég: Já, mér finnst bara svo gaman að fá hjálp
Matti: Já, kannski verður þú bara konan mín þegar ég er
orðinn stór
Ég: hahaha jahá… og hvað helduru að Árni segi við því?
Matti: Af hverju á hann að segja eitthvað?
Ég: Því hann er kærastinn minn.
Matti: Ó… ég vissi það ekki
*2ja mínútna umhugsunarpása
Matti: En hérna… ef Árni myndi þú veist?
Ég: Ha? Nei ég veit ekki, ef Árni myndi hvað
Matti: æjj sko… ef Árni myndi þú veist… æjj þú veist… deyja,
viltu þá vera konan mín?
Og ég vissi ekki hver ég ætlaði við þetta… sem betur fer var
þetta bara krakki, ef þetta hefði verið 20 ára einstaklingur að spyrja mig að
einhverju svona hefði ég orðið hrædd um líf Árna mín við síðustu spurninguna
/>
En já, síðan var það hann Hjörtur Snær sem er annað hvort
4ra eða 5 ára sem var að skoða dagatal og sýna mér hvenær hann átti afmæli og
ég sýndi honum hvenær ég á afmæli og þá spurði hann
Hjörtur Snær: Hvað verðuru gömul?
Ég: Ég verð 21
Hjörtur snær: Ertu 20 ára núna?
Ég: Já ég er 20 ára.
Hjörtur Snær kom með einhvern skrítinn svip og sagði:
ooooookeeeeeeeeyyyyyyyyyyyyy
Ég: Finnst þér það vera gamalt?
Hjörtur Snær setti upp rosa saklausan svip: Kannski smá, en
það er allt í lagi, pabbi minn er 34 og hann er sko ekki löngu dáinn!!!
Þá veit ég það… ef ég er heppin þá á ég 14 ár eftir
rosalega hughreystandi að vita það
(p.s. Helga Rún, þetta barn er rauðhært…
það kannski skín í gegn um söguna)
> >
En allavega, annað sem er á huganum á mér núna er þessi
blessaða svínaflensa sem er að ganga! Ég get ekki mótmælt því að ég er alveg
skíthrædd við hana! Las um hana fyrst fyrir 2 dögum og þegar ég las mbl.is í
dag þá voru 71 dáinn og hún farin frá mexíkó til USA, Frakklands, Spánar,
Kanada og hugsanlega Nýja Sjálands. Get ekki sagt að ég sé spennt. Las
einhversstaðar að þetta væri svipað og Spánska veikin sem gekk um heiminn
snemma á síðustu öld OG NÁÐI TIL ÍSLANDS… hvað þá núna þegar það tekur bara 3
klst að ferðast á milli landa! Þið íslendingar sem eruð í útlöndum…. Þið þurfið
bara ekkert að koma heim, verið bara þar sem þið eruð! Þú líka Árni minn, ég
hef enga löngun til að fá svínaflensu!!!!
Með þessum orðum ætla ég ekki að hafa þetta blessaða blogg
lengra en ég skora á Berglindi ef hún les þetta að byrja að blogga aftur! Mér leiðist

> >
Yfir og út
Hrafnkatla vesturlandsfari